Internetið

Hvað varð um Internetið?

Fyrir nokkru gat ég eytt ótrúlega miklum tíma á netinu. Mér fannst eins og ég hefði endalausa afþreygingu. Í dag verð ég einhvernmeginn uppiskroppa með efni til að skoða eftir smá stund. Ég skil þetta ekki alveg vegna þess að það eru mörg hundruð milljónir heimasíða á netinu. Ef að þeim gögnunum sem Internetið samanstendur af væri sett upp á bókarform og bókunum raðað upp. Þá myndu þær ná frá jörðu til Plútó og aftur til baka. Mörgum sinnum. Samt sem áður finn ég oftar en ekki nema nokkrar síður á netinu sem ég hef áhuga á að skoða.

Þetta eru aðallega fréttasíður sem tengjast því sem ég hef áhuga á. En það er bara svo mikið sem gerist á hverjum degi. Ég hef s.d. gaman af því að lesa um sund. En ekki einhver aldursflokkamót í Tulsa, Oklahoma. Ég hef s.s. gaman af því þegar það eru sett heimsmet, eða þegar eitthvað allmennilega markvert gerist. En eins og ég segi. Þá eru ekki sett heimsmet á hverjum degi.

Ég er farinn að hallast að því að það sem vanti sé ekki ný og betri tækni til þess að miðla upplýsingum (eins og Internetið). Það sem vantar er meiri og betri upplýsingar. Það vantar s.s. fleiri skemmtileg blogg, fleiri skemmtilegar bækur, fleiri skemmtilega sjónvarpsþætti. Fleiri skemmtilega leiki.

Mergur málsins er sennilega sá að Internetið er hafsjór upplýsinga. En megnið af þessum upplýsingum er drasl.

Við þurfum minna magn, en meiri gæði.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og fimmtán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband