Tímalínan

Tímalínan (Timeline) kallar fram dálítið blendnar tilfinningar hjá mér.

Tímalínan er nýjasta uppfærslan á Facebook samskiptavefnum. Hún felur það í sér að allt sem þú hefur sett inn á Facebook í gegnum tíðina verður sjáanlegt og er sett upp í tímaröð.

Mér finnst þetta alger snilld að því leiti að maður fær mun betri mynd af fólki (en í gömlu uppsetningunni). Breytingarnar fara heldur ekki illa í augað.

En þetta pirrar mig svakalega að því leiti að því leiti að það eru færslur sem ég hef sett inn á Facebook sem ég kæri mig ekkert endilega um að hver sem er geti skoðað.

Þetta gerir það að verkum að ég þarf núna að fara yfir allt sem ég hef sett þarna inn og ritskoða allt heila batteríið. En ég sé fyrir mér að það komi til með að taka allt of langann tíma. Heila eilífð.

Það hvarflaði jafnvel að mér að breyta Facebook nafninu mínu í Adolf Hitler, bara til þess að mér yrði hent út af vefnum (þar sem það er eiginlega ekki hægt að hætta þarna með því einfaldlega að loka aðgangnum). Vegna þess að ég er ekki að nenna að fara í gegnum allar þessar færslur.

Ég reyndar hætti við það vegna þess að Facebook hefur notagildi fyrir mig. Maður fær s.d. boð á ýmsa viðburði í gegnum Facebook sem maður myndi annars (mögulega) missa af.

Ætli maður eigi ekki eftir að enda á því að fara í gegnum allt draslið.

Því er ver og miður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki spurning að fara í gegnum þetta allt saman - deleta. Þetta er miklu áferðarfallegra.

Guðmann (IP-tala skráð) 20.12.2011 kl. 19:13

2 Smámynd: Sigurgeir Þór

Þetta fer ekki illa í augað.

Sigurgeir Þór, 20.12.2011 kl. 20:24

Bæta við athugasemd

Hver er summan af átta og sextán?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband